Heitar fréttir, beint úr smiðju Kalamov´s

Noticias de Ásvegur 23

18.09.2006 13:15:32 / kalamov

Höhhhh

Því miður hefur komið upp ritstífla hjá ritara síðunnar og hefur því ekki neitt verið sett hér á síðuna í langan tíma. Það mun þó losna um stífluna með tímanum og bið ég aðdáendur um að fara ekki að fremja sjálfsmorð eða stunda einhverskonar samfélagsleg frávik vegna þessa.

Lifið í friði og lifið lengur en til 27 ára aldurs. Það er líf eftir þrítugt.

» 5 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 13:19:06 / kalamov

Samsæri aldarinnar!

Captains log.

Húsvíkingar halda áfram að fjölga sér eins og þeir eigi lífið að leysa. Rannsókn sem birt var í fréttum Stöðvar 2 um daginn sagði frá því að trampólín geti stuðlað að betra kynlífi og frjósemi fólks sem hoppar á slíku tæki. Þetta að sjálfssögðu ýtir undir þær samsæristilgátur síðunnar um að það er ekki allt með felldu á Íslandi í dag.

Afhverju seljast þessi trampólín eins og heitar lummur? Og afhverju seljast þessi trampólín frekar þar sem uppgangur er í þjóðfélaginu? Getur verið að íslenska ríkið sé að reyna fjölga fólki á þeim stöðum þar sem aukið vinnuafl mun vanta í nákominni framtíð? Svarið er stutt og einfalt. Já!

Það er engin furða að fólk á Þórshöfn og Raufarhöfn er ekki að hoppa sig í stuð. Þar er enginn uppgangur og ekkert stuð. Á Húsavík eru trampólín í öðrum hverjum garði. Tilviljun? Held nú ekki. Í Bolungarvík eru heldur ekki mikið af trampólínum. Þeir einu sem hafa slík tæki ástarinnar eru þeir sem ekki vilja sameinast Ísafirði og er að reyna allt hvað þeir geta svo að sameining eigi sér ekki stað.

Á Akureyri er nokkuð mikið um trampólín, en ekki nándar eins mikið og á Húsavík sé miðað við höfuðtölu. Spurning mín til yfirvalda er því sú, hver er ástæðan fyrir því að Húsvíkingar eiga svo mörg trampólin? Og eru þeir að fá þau á niðurgreiddu verði? Hver flytur þessi trampólín inn í landið? Er það fyrirtæki kannski með ríkisábyrgð eða er ríkið sjálft að flytja þau inn?

Hvers þurfa hin bæjarfélögin í landinu að gjalda? Vestfirðingar missa vegaframkvæmdir, norð-austfirðingar tja... það var hvort eð er búið að afskrifa þá. Málið er einfalt. Það er hrein og klár þjóðarhreinsun í gangi. Allir útkjálkar mega missa sín! Ég spái því að ísland muni ekki líta út eins og það er í dag, mikið lengur. Búið verður að sökkva Vestfjörðum, norð austurlandi og suðurströndinni. Landið mun því líta út eins og þríhyrningur.

Þannig að við verðum að breyta vörn í sókn. Fólk þið verðið að fara ríða meira og eignast fleiri börn. Ég ætla undanskilja mig því seinna, vegna þess að ég er eiginlega með ofnæmi fyrir börnum, en þar sem ég er huguðurinn þá hef ég ekki tíma fyrir bleiu skipti og svona. Framtíðin er okkar, börnin eru framtíðin. Þau munu erfa landið og halda því heilu. Látum ekki kynörvandi trampólín ríkisins sigra okkur. Meira ungt fólk = betri afkoma. Graðfolar allra landshluta sameinist.

Captains log out.    


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 17:07:43 / kalamov

Gap-port!

Captains log.

Ég geng um götuna
allt er hljótt
en samt ekki
ég heyri eitthvað í fjarska
löngum fjarska
langt í burtu
ég geng áfram
en hjóðið kemur ekki nær
ekki fjær
ekki neitt
það hættir
það byrtist við hlið mér
ég sé ekki neitt
en ég heyri það
það hættir
það er farið
farið fyrir fullt og allt
það er ekkert
ekki neitt

Aðalheiður
          1988-

Já svona leið mér þegar ég var í vinnunni á fimmtudaginn. Ég var nefnilega á Raufarhöfn að fylgjast með glæpalýðnum þar. Satt besta að segja get ég alveg skilið afhverju fólk vill ekki búa þarna, þarna er ekki neitt. Engar samgöngur engin þjónusta, engin vinna, ekkert! Mér leið eins og ég væri kominn á hjara veraldar. Nema að þarna er nú ágætis fólk.

Á Raufarhöfn er búið í öðruhverju húsi. Pælið í því! Ég varð pínu gáttaður þegar að ég kom þangað. Ég er ennþá að ná mér af menningar sjokkinu. Eitt er þó gott við að fara á þennan stað sem Guð og ríkið hafa kosið að gleyma, en það er yfirvinnan og dagpeningarnir....

Captains log out.


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 18:04:33 / kalamov

Jú stúpid man!

Captains log.

Grozny.... grozny, ruskí..... da da da. ..

Þetta er orðið alvarlegt hér í Túngötunni (Grass street 17). Vistmeðlimir mínir hér í Gúlakinu voru nærri því búnir að flippa út af límingunum í gær!

Málið er þannig að Emil pólski er sóði og djúpsteikir allann matinn sinn, sem er ekki geðslegt. Af því skapast mikill sóðaskapur og til að bæta gráu ofan á hvítt þá þrífur hann ekki eftir sig. Þetta þykir hinum blóðheita Goran frá Serbíu ekki sniðugt. Þar sem hann lendir alltaf í því að þrífa eftir Emil pólska.

Það mátti því ekki muna miklu í gær að uppúr syði þegar ég kom heim. Og má því segja að ég hafi farið þar með hlutverk Jens Stoltenberg sáttasemjara, því nærvera mín róaaði Serba og ekkert varð að stríði þeirra við Pólland. En það er þó ennþá stirt samband þarna á milli og kæmi mér ekki á óvart a ég yrði kallaður út vegna morðs í Gúlakinu.

Það var nú samt gaman að heyra þegar Goran OfurSerbi var að hella fúkyrðunum yfir Emil SóðaPólska.  Emiiiillll!!! Jú stúpid man... Jú alveis not klín after jú elda..... Stúpid man!!!!!

Og hana nú Emil SóðaPólski! Sagði ég inní mér hálf hlæjandi. Ekki heyrðist mikið frá Emil SóðaPólska en ég get svarði það að ég heyrði eitthvað á þessa leið ,,grúzný droznba werznyzlaveska kúrfa” Síðasta hlutann skildi ég.

Ég er að spá í að breyta þessari vist minni í Littlu Varsjá í félagslega rannsókn á högum austur-Evrópu búa á Íslandi. Það er ekki stórt þýði sem ég hef og þar af leiðandi get ég ekki sagt að rannsóknin verði mjög traust verð eða sönn, en það skiptir ekki máli þegar maður er að alhæfa. Maður þarf bara að sjá að einn sé sóði þá eru hinir það líka. Ekki satt?

Captains log out.


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 11:25:42 / kalamov

Fréttir loksins!

 

Captains log.

Vegna þess hversu fréttir hafa lengi legið dvala hér á þessari marg rómuðu fréttasíðu, þykir fréttastjóra síðunnar réttast að koma með pistil þar sem farið verður yfir helstu efni líðandi mánaðar.

Eftir að hafa yfirgefið Sin City og komið til Pleasentville hefur fyrrum vistmaður Smárahlíðar 16 virkilega látið til sín taka í undirheimum North Congress-Island county.

Þessi fyrrum vistmaður Smárahlíðar 16 hefur verið komið fyrir sem sérlegur njósnari útlendingaeftirlitsins og er nú við njósnir í Grass street 17b a.k.a. Da Gúlak. Þar sem haldið er að aðskilnaðarsinnar Serbíu við Svartfellinga séu búsettir og stjórni aðgerðum knattspyrnuliðs Serbíu&Svartfjallalands með vægast sagt lélegum árangri. Talið er að þetta sé þeirra aðferð til þess að sýna að þessi lönd eigi alls ekki að vera sameinuð.

Á milli þess að vera njósnari fyrir útlendinga eftirlit hennar Hátignar Hildar Dungal, er vistmaðurinn fyrrverandi, einnig aðalyfirheyrslu sérfræðingur rannsóknardeildar lögreglu í North Congress-Island county. Og hafa ýmsir menn og konur, smáir sem háir brotnað niður við yfirheyrslur vistmannsins fyrrverandi, sem hefur fengið viðurnefnið Gestapólís.

En að fréttum sem eru ekki lögreglulegs eðlis.

Mikið er um að fólk eðli sig hratt hér í Pleasentville. Og hefur Gestapólís orðið var við það á þeim stutta tíma sem hann hefur verið hér. Stúlkur allt niður í 17 ára hafa sést á gangi með eitt maga og annað í vagni. Þetta er þó ekki ólöglegt hér heldur hafa íbúar í Pleasentville allir sem einn lagst (í orðsins fyllstu) saman í það að fjölga heimamönnum ef ske kynni að hingað kæmi nú stóriðja.

Farið hefur verið í aðgerðir sem telja mætti róttækar, en þær eru að allir hafa skipt um trú og er nú kaþólsk trú eina trúin sem iðkuð er í North Congress-Island county. Búið er að banna verjur og samkynhneigð er ekki leyfð.

Stjórnarmenn í Pleasentville eru meira að segja í það miklum ofsa að fjölga hér fólki fyrir komandi stóriðju að sett hefur verið á stað miðlunarskrifstofa fyrir ófrítt fólk sem ekki gengur út með eðlilegum hætti. En hugmyndin er sú að flytja inn fólk af erlendum uppruna til þess að aðstoða ófríða fólkið við að fjölga sér einnig. En þess má til gamans geta að slagorð stjórnarmanna í liðinni sveitarstjórnarkosningum var einmitt ,,Ófrítt fólk er líka fólk, það þarf líka að fá að ríða”

Og þá að fréttum af veðri.

Það hefur verið gott!

Captains log out.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 13:33:01 / kalamov

New sheriff in town!

Captains log.

Já þá er það ákveðið. Segi ég eins og Kasper, Jesper og Jónatan þegar þeir ákváðu að fara og ræna Soffíu frænku. En ég er ekki að fara ræna neinni Soffíu enda þarf ég þess ekki. En ég ákvað fyrir stuttu að styrkja lögreglu Húsavíkur með nærveru minni þar í sumar. It´s a dirty job, but somebody has to do it! Þannig að Húsvíkingar passið ykkur, there is a new sheriff in town , and he is a mean machine! Eða þannig.

Ég er núna að reyna leggja lokarhönd á ritgerð mína um málfarsbreytingar íslenskunnar, sögulegt yfirgrip. Ég held að ég hafi aldrei fundið til skemmtunar við neitt íslenskuverkefni áður, ég hlæ alltaf á vissu millibili þegar ég er að gera þessa ritgerð vegna þess hversu hlægilegt mér finnst það að vera búinn að fara í þrjá alveg nákvæmlega eins áfanga bara á mismunandi tungumáli, einn á ensku, á einu skóla ári. Þetta sýnir því miður hvernig skipulagsleysið fyrir 1.árs nema, í þessum svo annars frábæra skóla, þurfa að líða. En það á að breyta þessu öllu fyrir næsta ár. Þannig að það sem ég er að gera núna verður ekki einusinni kennt á næsta ári. Ég vil því nýta tækifærið og óska þeim sem fara í nám við Félags og Lagadeild H.A næsta haust til hamingju með það að losna við þessa tilgangslausu áfanga sem ég hef þurft að sitja. En eins og máltakið segir; Enginn verður óbarinn biskup. Eða í mínu tilfelli; enginn verður tilgangslaust menntaður sálfræðingur!

Captains log out.   


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 16:59:44 / kalamov

Blogg

Captains log.

Það má segja að mikil vistaskipti hafi verið undanfarið, allavegana frá því að síðasta blogg var ritað. Heimkoma ferðalangsins Maríu ber þar hæðst að segja frá en einnig eru ýmsar aðrar fréttir sem mér ber skylda að leyna ekki. Ég vil byrja á því að segja ykkur að ég er ekki kominn með fasta vinnu í sumar, þrátt fyrir að ég hafi svo mörg járn í eldinum að ekki fleiri komist þar fyrir (eldurinn er ekkert það stór). Að sjálfsögðu er mikið að gera í skólanum, og er gaman að segja frá því að nú fer senn að ljúka mínu fyrsta ári sem nemandi í efsta menntunarþrepinu. Ég get ekki sagt að sjóndeildarhringur minn hafi eitthvað víkkað, því nú sé ég bara það sem er að heiminum, ekki það sem er gott. ,,Fáviska er æðisleg” . Ekki mennta ykkur meira gott fólk, það leiðir bara til efnahags ringulreiðar, depurðar, trúleysi á náunganum, reiðar í garð minnihlutahópa og óhóflegar áfengisneyslu. Ekki það að ég þjáist af einhverju af þessum kvillum, vildi bara vara ykkur við.

Þannig er nú mál með vexti, aðdáendur mínir, að ég mun ekki heyðra ykkur með nærveru minni fyrir vestan, því ég mun fara í gagnstæða átt og halda á vit virkjanaframkvæmda, álverssmíða og annarra náttúru spjalla, svo og auðvitað fermingarveislu systur minnar. Já en ekki örvænta gott fólk því ég kem vestur um helgina oft kennda við Hvíta-Sunnu, og þá mun ég heimsækja ykkur fylgjendur mínir, sem eru ekki nema í mesta lagi 20, miðað við teljara síðunnar. Nema að þið séuð 40 og farið bara annan hvern dag á síðuna, eða fleiri. Tja kannski skiptið þið tugum hundruða... hehe....

Captains log out  


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 20:45:09 / kalamov

Nærbuxur!

Captains log.

Já ég tók eftir ummælum Jón Gunnarssonar, lífsspegúlant og fyrrum kolleiga, að nærbuxur sem eru dökkar á lit, helst svartar séu bestar þegar menn vilja spara sér þvott. Ef við búum nú til kjörmynd af þessum ummælum og yfirfærum þau á hinn almenna borgara, þá getum við ímyndað okkar að hinn almenni maður þvoi ekki, og skipti þ.a.l. ekki um þær, nema með vissu millibili. Gefum okkur það að þvottur sé 1. hvers mánaðar. Gefum okkur það að þessi almenni maður fari að meðaltali 1.sinni á klósettið á dag til þess að losa sig við hægðir sínar. Hann notar að meðaltali 3 klóssettrúllu blöð við hverja skeiningu. Þar sem hinn almenni maður er með meðal mikinn hárvöxt má gera ráð fyrir því að ekki náist allt við skeiningu, og fer því það sem ekki fór við skeiningu í nærbrækurnar.

Gott og vel, gefum okkur það að hjá meðal manni komi að meðaltali hálfur fersentímeter við hverja klósettferð, klósettferðirnar eru því 30 í mánuði, 31 í löngum mánuði og 29 ef það er hlaupár, annars bara 28 í febrúar. Fari þessi meðal maður meðal mikið á djammið má áætla að hann drekki meðal mikið og svitni líka meðal. Gefum okkur það að meðal afföll líkamsvatns á djammi sé 1dl af vökva, því jú hann dansar líka meðal mikið. Sá sviti sem fer beint í nærbuxurnar eru 1/10 dl að meðaltali. Meðal maður djammar að meðaltali 4 sinnum í mánuði. Þegar allt þetta er lagt saman má áætla, að 90 blöð fari á mánuði í skeiningar og 17 fersentímetrar þekjist af saur, taki maður inn í dæmið svitann sem er 4/10 úr dl. Ekki er tekið inn í dæmið fleiri breytur úr meðal lífi meðal mannsins, þar sem það gæti gert þetta dæmi ótrúverðugt.

Þetta leiðir allt að því að safni meðal maðurinn öllum saurnum úr nærbrókunum sínu í heilt ár getur hann notað það sem eðal áburð á rándýrt Bonsai tré sem hann getur keypt sér við allann sparnaðinn sem kemur frá því að skipta ekki um nærbuxur. Endilega látið Árna M. Mathisen frá þessari frábæru fjármálapælingu minni, því mig vantar vinnu í sumar. Nokkuð viss að þeir geti borgað einum manni fyrir að reikna svo dæmi fyrst þeir geta borgað allskonar ráðgjöfum um hversu ódýrt þeir eigi að selja Símann. Er þetta þá ekki bara sami skíturinn?

Captains log out.  


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 13:06:19 / kalamov

Árshátíð

Captains log

,,Gott djamm er mælt eftir því hversu skítugar nærbuxur þínar eru þegar þú kemur heim” sagði Jón Gunnarsson sællar minningar. En eins og margir vita, sem vita eitthvað, var árshátíð H.A. síðastliðna helgi. En samkvæmt skilgreiningunni eiga menn helst að skíta á sig og míga og æla yfir sig svo hægt sé að segja að þeir hafi djammað. Það því miður gerði enginn sem síðan hefur talað við og má því segja að í H.A. séu bara eintómir ,,amatörar”. En heilmikið gerðist á þessari skemmtun sem seint mundi teljast til eðlilegrar hegðunar, og er þá átt við efni sem mundi teljast til slúðurs (ef þið lumið á einhverju endilega sendið mér línu 868-7508 ).

Captains log out


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 17:00:27 / kalamov

Heimkoma

Captains log.

Mikil gleði ríkir enn í vistarverum vistmannanna í íbúð 3 G í Smárahlíð. En fyrir skömmu var staðfest að rekkjunautur og elskhugi annars vistmannanna er á heimleið eftir víking í landi hinna fátæku fótboltaspilara. Er hér um að ræða unga dömu sem ákvað í sakleysi sínu að fara til Suður Ameríku til þess að athuga hvernig ,,hitt” fólkið hafi það. Mikið hefur bjátað á meðan hún hefur verið erlendis s.s. mikil uppsöfnun líkamsvessa, þunglyndi vegna BFG og bílavandamál. En bílavandamálin er ekki hægt að tengja við ferðalög dömunnar. Síðasti áfangi ferðar hennar er að skoða Veröld Walt nokkurs Disney í Flórída fylki, í landi hinna frjálsu, Bandaríkjanna.

Í borg innflytjendanna, Miami, verður stoppað í nokkra daga til þess að skoða sílikon brjóst á ströndinni, og reynt að sjá frægt fólk. Munu ferðalangarnir, sem eru þrír í hóp, leigja sér ameríska bifreið og aka um sveitir appelsínufylkisins og sjúga í sig kúbanska menningu eins og hún gerist amerískust. Svo verður haldið heim til lands íssins og snjóssins þar sem hefðbundið líferni tekið upp að nýju, eftir 28 daga heimsókn á Vogi. Sérstök mótökunefnd hefur verið skipuð til þess að taka á móti ferðalöngunum á Keflarvíkurflugvelli, og mun það vera annars vistmaðurinn í Smárahlíð 16 sem mun taka það verkefni að sér.

 

Captains log out.   

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 21:36:33 / kalamov

Cheers mate!

Captains log.

Hafið þið einhverntímann labbað inn á einhvern stað og allir hafa tekið rosalega vel á móti ykkur? Hafið þið fundið fyrir því þegar nærveru ykkar er óskað? Þegar og ef það gerist nokkurtíman á lífsleið ykkar hugsið þá þetta litla stef. Stefið úr Cheers, lagið sem allir elska.

Making your way in the world today takes everything you've got.

Taking a break from all your worries, sure would help a lot.

Wouldn't you like to get away?

Sometimes you want to go, where everybody knows your name,

and they're always glad you came.

You wanna be where you can see, our troubles are all the same

You wanna be where everybody knows your name.

You wanna go where people know, people are all the same,

You wanna go where everybody knows your name.

You want to go where people know, people are all the same;

You want to go where everybody knows your name.

Captains log out.






» 1 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 17:30:33 / kalamov

Bjartir tímar?

Captains log.

Undanfarnir dagar hafa verið bæði súrir og sætir. Mikill munur hefur verið á hæðum og lægðum í geðsveiflum vistmannanna í Smárahlíð 16. Svo dæmi séu tekin var bifreiðin NO-481 heimt úr helju á föstudaginn síðastliðinn og upphófst mikil hamingja, þar sem kálfi var fórnað til bílaguðsins Fiat el magnifico. Mikið hefur verið um uppáferðir annars vistmannsins í febrúar mánuði. Og muna elstu menn ekki einu sinni eftir slíkri ,,gósen tíð” hjá þeim karlmanni er hér um ræðir. Við skulum vona að þetta vari sem lengst því góðir hlutir venjast illa af. Nokkuð hefur verið um drykkju áfengis á meðal vistmanna og má rekja það til mikillar vanrækslu á innri tilfinnungum, og er því áfengið tól bælingarinnar sem brýst út í mikilli árásarhneigð í garð minnihlutahópa, s.s. dverga, kynlífsfíkla, dvergvaxnra kynlífsfíkla og rétthenntra vinstrisinnaðra frjálslyndismanna með ljóst hár, brún augu, freknur og útstæð eyru. Ekki er samt vitað til þess að nokkur hafi slasast í ofbeldisverkunum gegn þessum minnihlutahópum.

Captains log out.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 23:03:43 / kalamov

Eftirlýsing!

Captains log.

Lýst er eftir Þorbirni Jóhannessyni, hann er rúmlega tvítugur, hvítur karlmaður af aría uppruna. Hann sást síðast fara frá heimili sínu við Smárahlíð 16 aðfararnótt fimmtudagsins 2. febrúars. Hann var klæddur í gallabuxur, svartri úlpu og brúnum skóm. Talið er að hann hafi verið tældur af kvenmanni sem haldi honum gíslingu sem kynlífsþræl. Allir þeir sem hafa einhverjar vísbendingar um ferðir Þorbjarnar eru beðnir um að hafa samband við lögreglu Akureyrar. Þorbjörn er ekki talinn hættulegur.

Captains log out.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 22:39:47 / kalamov

Sveitastjórnarkosningar!

Captains log.

Flokkur innflytjenda mun bjóða sig fram í sveitastjórnarkosningum hjá Ísafjarðarbæ sem fer fram í vor. Flokkurinn samanstendur af fólki sem hefur flutt til landsins á undanförnum áratugum og eru þjóðerni í flokknum á fjórða tug. Flokkurinn mun kalla sig ,,Af erlendu bergi” og munu helstu málefni hans vera að leyfa útlendingum sem koma til landsins að vera hér óáreittir gagnvart alls kyns útlendinga kennslu sem þeir telja vera mismunun. Tharapong Jósafat Hraungaophat sagði í viðtali við síðuna að honum fyndist ekkert verra en að fara í menntaskólann á Ísafirði til þess að læra að eitthvað tungumál sem ekki nema 300.000 hræður tala. ,,Sletta elu kannski bala jafnmalgil og búa í ein blokk í Bangkokk Tæland” sagði Tharapong reiður í fasi.

Annar flokksmeðlimur, Andrei Laslow Writonesckuworal, sagði að hann væri ekki sáttur við það að hans háskólaskírteini væri ekki metið hér á Íslandi. ,,Jek er medu mjogg goda mentún frá Belarus, tar sem jek lærda ad skera úp fólk, og eg lærda tad af gamli skolinn, ekki nein flottur tæki eda neitt fyrir tvo ár sidan ”  

Líklegt þykir að flokkurinn muni ná meirihluta í kosningunum í vor, eins og margir vita eru innflytjendur í miklum meirihluta íbúa á t.d. Þingeyri, sem mun hljóta nafnið Lai Phat ef flokkurinn hlýtur sigur, Flateyri mun fá nafnið Nova Manilla og Suðureyri fær Wladiascki.

 

 



Múslimar í Bolungarvík hlupu út á götur bæjarins í gær og sprengdu upp ruslatunnur og brenndu runna til kaldra kola, til þess að mótmæla skopmyndum sem Jótlandspósturinn birti af spámanninum Múhameð í september á síðasta ári. Talið er að tveir lögreglumenn og einn múslimi hafi slasast í átökunum sem brutust út á milli mótmælanda og lögreglu í gær. Tjón af völdum skemmdaverkana hleypur á tugum króna, og hefur sérstakt söfnunar átak verið sett af stað til aðstoðar þeirra sem fóru verst út úr hroðaverkunum. Góðvildarmenn bæjarins hafa heitið því að leggja sitt af mörkum, og hafa nú þegar safnast 20.000 kr. Gummi Jór, sagði í viðtali við síðuna að hann væri steinhissa á þessum látum í Mussaef. ,,Hhhhhann err ekkkki vanur aðððððð lllláta sssssvvvoona. Hhaaann err bbaara alllltttafff gggóðður” sagði Guðmundur á met tíma. Hann sagðist einnig vona að Jón og Gylfi væru ekki mikið slasaðir eftir Mussaef. Í dag þustu svo múslimarnir, eða öllu heldur músliminn, inn í búðir bæjarins og tóku allar danskar vörur sem þeir komu augum á og brenndu þær með miklum tilþrifum fyrir framan heimili eina danskættaða íbúans í bænum. Yfirvöld í bænum telja að þetta muni líða yfir fljótlega og segja að það sé erfitt að hafa hendur í hári múslimana þar sem þeir feli sig í fjallagraðinum í kringum Bolungarvík.

Captains log out.


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 13:39:28 / kalamov

Júdómót!

Captains log.

Jæja þá komið að því.... Maður er í þann mund að leggja af stað til borgar óttans, að berjast við samiðkenndur mína í íþróttinni Judo. Það verður vafalaust mikið barist og munu ófá tárin streyma niður kinnar andstæðinga minna. Ég hef því miður enga reynslu úr júdó keppnum en með mér munu fara Arnar, Ari og Ingþór. Þeir hafa allir keppt og munu eflaust gefa mér góð ráð. Reyndar fer keppnin ekki fram í borg óttans heldur í Harlem suðurnesjanna... þ.e. í Keflavík. Það virðist svolítið elta þessa bæi sem enda á vík að þar eru upp til hópa snarbilað lið. En nóg um það seinna.

Ég ætla að reyna vera duglegur að taka myndir af merkisatburðinum, og ef einhverjir eru heitir fyrir því að koma og horfa á... þá verður keppnin í íþróttahúsi Íþróttaakademíunar í Keflavík. Mótið byrjar klukkan 11 og verður eitthvað fram eftir degi. Um að gera að mæta og sjá hvernig alvöru karlmenn í náttfötum faðma hvern annann og og koma hverjum öðrum í fáránlegar stellingar og stynja.... Gaman af því!

Captains log out.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3